Spurningar og svör

Algengar spurningar og svör um loft í loft varmadælur


Er mælt með að taka niður alla rafmagns þilofna þegar sett hefur verið upp loft í loft varmadæla?

Nei, varmadælan er orkusparandi viðbót við núverandi hitagjafa byggingarinnar, það gæti þurft að nota hita frá ofnum í herbergjum sem eru mjög langt frá varmadælunni eða þegar mjög kalt er úti og varmadælan nær ekki að anna óskuðu hitastigi. Það á hins vegar ekki að þurfa að koma til þess ef rétt stærð af varmadælu er valin. Einnig ber að hafa í huga að herbergi sem eru að jafnaði ekki opið inn í þurfa annan orkugjafa þar sem varmadælan nær hugsanlega ekki að hita þar inn.


Eldri hús geta verið eða eru oft hönnuð þannig að í þeim eru mörg lokuð rými og því erfitt að ná jafnri dreifingu hita með loft í loft varmadælu. Í þeim tilvikum er rétt að leita ráðgjafar reyndra uppsetningaraðila til að finna rétta staðsetningu innihluta dælunnar og jafnvel skoða hvort rétt sé að nota loft í vatn varmadælu sem nýtir fyrirliggjandi gólfhita eða vatnshitaofna.


Í öllum tilvikum er ráðlagt að hafa lágmarksfjölda ofna tiltæka í húsnæðinu til að forðast frostskemmdir ef varmadælan stoppar af einhverjum orsökum. Ofnana er þá best að stilla t.d. á ca. 6 gráður svo að þeir kveiki aðeins á sér í neyðartilvikum.


Hefur kólnandi lofthiti utanhús áhrif á varmadæluna?
Hlutfallið af orkunni í útiloftinu sem varmadælan vinnur úr minnkar með kólnandi veðri. Varmadælan vinnur gegn þessu tapi með því að auka afköstin á pressunni til að anna óskuðu hitastigi í vistarverunni. Þegar útihitastigið er komið niður að -25°C fara afköstin að dvína verulega. Panasonic Nordic loft í loft
varmadælur eru þó sérstaklega framleiddar til notkunar á köldum svæðum eins og hér á íslandi sem þýðir m.a. að þær slökkva ekki á sér þó að útihitinn fari niður fyrir -25°C. Varmadælan er mikil hagræðing jafnvel þó að nota þurfi ofna í einu eða fleiri herbergjum, þá er samt mikil sparnaður af hitanum sem varmadælan framleiðir.


Hvaða viðhaldi þarf eigandi varmadælunnar að sinna?
Panasonic varmadælurnar eru útbúnar öflugum síubúnaði t.d. Plasmaster filter, veiru og ofnæmisfilter sem hreinsar stóran hluta svifryks og HZ loft í loft gerðirnar einnig bakteríur og jafnvel myglugróa úr lofti húsnæðisins. Mikilvægt er að halda loftsíunum í innihlutanum hreinum og lausum við óhreinindi, raka og aðra aðskotahluti. Síurnar eru einfaldar í þrifum og eru hreinsaðar með ryksugu eða blásið úr þeim með loftblæstri og jafnvel skolaðar með volgu vatni ef í þær safnast fita. Ef þú ert í vafa hvernig þú hreinsar síurnar skaltu hafa samband við söluaðilann og hann aðstoðar þig. Greint er frá því í HANDBÓK hversu oft þarf að hreinsa síurnar, AIR FILTER á 2 vikna fresti en aðrar síur á 3 mánaðar fresti en það er hins vegar æskilegt til að byrja með að fylgjast með þeim sinni í mánuði því að ef um mikið ryk er að ræða þarf að hreinsa oftar en HANDBÓK gefur upp i.e. breytilegt frá einum stað til annars. Ef ekki er hugsað um hreinsun síanna fer varmadælan að draga loft og þar með óhreinindi inn um allar glufur og getur það valdið því að taka þarf innihlutann í sundur til hreinsunar. Þetta er talsverð aðgerð og fylgir þessu verulegur kostnaður sem ekki fellur undir ábyrgðarþjónustu. Enn verra er að við mikil óhreinindi í hitaelementinu dregur stórlega úr afköstum varmadælunnar og þeim sparnaði sem vænst var að hún skilaði. Gæta þarf að því að utanhússparturinn safni ekki á sig snjó, laufum eða öðrum aðskotahlutum, en þá má skola eða bursta grillið á útihlutanum með mjúkum bursta eftir þörfum, gæta skal varúðar við þetta því grillið er viðkvæmt.


Getur hver sem er sett varmadæluna upp sjálfur?
Nei, uppsetninguna þurfa sérþjálfaðir menn að gera vegna meðferðar á kælimiðli og raftenginga og einnig til að tryggja að staðsetningin á einingum kerfisins sé eins góð og mögulegt er við viðkomandi aðstæður. Þannig er leitast við að varmadælan skili tilætluðum afköstum og að tryggja endingu hennar og viðhaldi
ábyrgðar.


Kveikir varmadælan sjálfkrafa á sér ef rafmagnið fer af?
Já varmadælan kveikir nær alltaf sjálfkrafa á sér aftur þegar rafmagnið er komið á, í einstaka tilvikum getur þó þurft að endurræsa hana ef um mikið spennuflökt hefur verið að ræða á raforkukerfinu. Því veldur innbyggð vörn varmadælunnar svo hún eyðileggist ekki við meiriháttar spennubreytingar


Hvernig er varmadælan endurræst?
Með því að taka dæluna úr sambandi og kveikja á henni aftur.


Hvaða stillingar á að nota á fjarstýringunni?
Mælt er með að stilla virkni varmadælunnar með MODE takkanum á fjarstýringunni á hitastillingu (Heat), ekki er talin þörf á að nota auto stillinguna við okkar íslensku aðstæður. Hinsvegar er best að stilla viftuhraðann (Fan) og ristarnar (flaps) á Auto þannig að stýringin í vélinni sjái um að stýra þessum þáttum eftir hitastigi og orkuþörf.


Á vatn að leka úr utanhússpartinum?
Ristarnar á útihlutanum verða mun kaldari en loftið sem flæðir um þær og þá þéttist raki á ristunum sem lekur síðan niður um affallsgat á húsi vélarinnar. Við mikinn kulda frýs þessi raki og varmadælan setur þá af stað afhrýmingu eftir þörfum.


Hvers vegna lætur varmadælan mismunandi frá degi til dags?
Þetta er vegna þess að pressan og viftan í utanhússpartinum eru hraðastýrðar eftir álagi og keyra á
mismunandi hraða eftir hitaþörf byggingar og útihita.


Stundum kemur lágt hviss úr innitækinu. Hvað veldur?
Við afhrýmingu útihlutans breytist flæði kælimiðilsins gegnum fjórvirkan ventil. Þegar ventillinn breytir flæðinu og snýr virkni vélarinnar gæti þetta hljóð heyrst.


Hvers vegna heyrast smá brestir í innihlutanum?
Plasthlífar utan um innihlutann og festingar á álhúsi varmagjafans í innihlutanum þenjast eða rýrna ögna þegar hitabreytingar verða í tækinu þessi breyting á spennu í plastinu gæti valdið því að smá brestir heyrist frá tækinu.


Hvers vegna verður breyting á viftuhraðanum þó að hann sé stilltur á hæstu stillingu?
Varmadælan er með sjálfvirkri stýringu á afköstum sem breytir hraðanum á viftunni ef hitinn í varmagjafanum verður of lítill t.d í miklum frosthörkum, þá lækkar tækið hraðann á viftunni til að viðhalda eða auka hitann í varmagjafanum, þetta gerist einnig ef varmadælan er stillt á lægstu stillingu til að hindra að dælan skili of miklum hita.


Hversu stórt hús nær varmadælan að hita?
Mjög mismunandi getur verið hversu stórt húsnæði hver dæla fyrir sig getur hitað upp. Þetta er vegna þess hversu mismunandi aðstæður geta verið t.d. eftir því hvar á landinu er um að ræða, hversu vel viðkomandi húsakynni eru einangruð, hversu loftrými er mikið, hvort húsnæðið er í skjóli og ekki síst hvort um er að ræða íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Þessi atriði þurfa sölumenn okkar að fá upplýsingar um í hverju tilfelli fyrir sig til þess að geta gefið ráðgjöf um hvaða stærð hentar best.